Kæru skjólstæðingar Sjúkraþjálfunar Kópavogs!
Heilbrigðisráðherra gaf út hertar sóttvarnarreglur vegna Covid 19 þann 5. október.
Við höldum ótrauð áfram og herðum okkar sóttvarnir.
Við minnum á að nú er algjör grímuskylda og biðjum því skjólstæðinga okkar að mæta alltaf í sjúkraþjálfun með andlitsgrímu.
Við höfum gert allt til að fækka öllum snertiflötum og meðferð fer eingöngu fram í lokuðum rýmum.
Þá leggjum við áherslu á eftirfarandi atriði:
- Ef þú finnur fyrir einkennum sem líkjast Covid 19 einkennum vinsamlegast afbókaðu tímann og leitaðu strax til heilsugæslunnar.
- Við óskum eftir góðu samstarfi og biðjum skjólstæðinga okkar að sýna aðgát og nærgætni við komu og brottför við afgreiðslu.
- Við minnum alla á 2 metra regluna.
- Æfingasalurinn er lokaður nema í fylgd sjúkraþjálfara. Hópatímar eru opnir enda sóttvarnarreglur virtar.
- Skjólstæðingar þurfa ekki að staðfesta komu með kennitöluskráningu í afgreiðslu.
- Við biðjum skjólstæðinga að mæta nú rétt fyrir bókaðan tíma til að forðast þrengsli. Biðstólar eru nú dreifðir og eru einnig fyrir utan nokkur meðferðarrými.
Bestu kveðjur, Sjúkraþjálfun Kópavogs