Þjónusta

Gjaldskrá

Frá 1. nóvember 2026 þarf ekki lengur tilvísun læknis (Beiðni í Sjúkraþjálfun) til að njóta greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga fyrir þjónustu sjúkraþjálfara.
Hvað þýðir það fyrir þig?

✅ Þú getur leitað beint til sjúkraþjálfara og þarft ekki tilvísun eftir 6 meðferðarskipti
✅ Sjúkraþjálfari metur vandann, meðferðarþörf og næstu skref

Sjúkratryggingar taka þátt í kostnaði við sjúkraþjálfun. Niðurgreiðslur vegna sjúkraþjálfunar eru inni í greiðsluþátttökukerfinu.

Sérstaka komugjaldið leggst ofan á greiðslu samkvæmt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustunnar. Gjaldið er utan afsláttarstofns og lækkar því ekki þótt fjöldi komu- eða meðferðartíma aukist.

Sama komugjald gildir fyrir styttri meðferðir, hóptíma, fjarþjálfun og almenna meðferðir. Einstaklingar sem njóta 100% niðurgreiðslu vegna heimasjúkraþjálfunar greiða ekki sérstakt komugjald. Börn greiða ekki sérstakt komugjald. Eftir að 67 ára aldri er náð teljast allir aldraðir einnig þeir sem áður voru öryrkjar. Einstaklingar sem eru á endurhæfingarlífeyri greiða það sama og öryrkjar. Þegar um slysmál sem samþykkt eru að Sjúkratryggingum er að ræða þá greiðir einstaklingur ekki komugjald.

Gjaldskrá

Hópur

Sérstakt komugjald

Almennt sjúkratryggðir

1.500 kr.

Aldraðir

1.000 kr.

Öryrkjar

500 kr.

Börn yngri en 18 ára

0 kr.

Sérstaka komugjaldið birtist sem sérstakur gjaldaliður á reikningi.  Samanlögð greiðsla einstaklings samkvæmt greiðsluþátttökukerfi og sérstakt komugjald getur þó aldrei orðið hærri en fullt gjald samkvæmt gildandi gjaldskrá.

Vinsamlegast athugið að Sjúkraþjálfun Kópavogs ehf áskilur sér rétt til að krefjast forfallagjalds kr. 5000 hafi meðferðartími ekki verið
afboðaður fyrir kl. 9:00 að morgni þess dags sem bókaður tími er dagsettur.

Scroll to Top